miðvikudagur, febrúar 06, 2008

Cliff Young

Þrátt fyrir nafnið þá er Cliff Young nú enginn unglingur lengur en hins vegar er hann mér mikill innblástur og enn ein sönnunin á því að hið ómögulega er hreint ekki svo ómögulegt. Hugurinn er öflugt fyrirbæri og betra að hafa hann með sér en á móti. Lesið söguna af Cliff Young. Það er líka grein um hann á Wikipediu.

2 ummæli:

Unknown sagði...

Gaman að sjá skrifað hér á nýjan leik eftir nokkurt hlé.
Já, Young minnti á skjaldbökuna og hérann. Í gær var einmitt svona skjaldbökuafmæli hjá mér... sjö ár liðin síðan ég hætti að vera skjaldbaka (en ég er nú samt óttaleg skjaldbaka í mér stundum!).

baldur sagði...

Jú þarna er sami klassíkerinn á ferðinni. Til hamingju með skjaldbökuafmælið :)